Í dag hélt Stefán Atli Rúnarsson námskeið í Gjábakka fyrir félagsmenn FEBK. Þetta var þriðja námskeiðið sem Stefán heldur fyrir okkur og hefur verið fullt á þeim öllum. Vel yfir 200 félagsmenn hafa sótt þessi vinsælu námskeið.Stefán er þekktur fyrir að útskýra flókin mál á skýran, aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Í dag kynnti hann ChatGPT…
Author Archives: febk
Í mars 2023 var ég beðinn um að ganga í stjórn Félags eldri borgara í Kópavogi. Ég var tregur til í upphafi og hugsaði sem svo: „Hvað hef ég fram að færa varðandi eldri borgara?“ Ég sló samt til og var kjörinn í stjórn sem varaformaður og síðar sem formaður. Ég hef ekki séð eftir…
Í dag var haldið námskeið um gervigreindina ChatGPT sem var mjög vel sótt. Þetta var í annað skipti sem námskeiðið er haldið fyrir félagsmenn FEBK. Að þessu sinni var námskeiðið haldið í Boðanum og fræðari var Stefán Atli Rúnarsson eins og áður. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt námskeið. Gervigreindin samdi þessi lög á námskeiðinu…
Fyrsta laugardagsopnun ársins var í Gullsmára laugardaginn 17. janúar. Mæting var góð, rúmlega 51 manns mættu. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði var með mjög áhugaverðan fyrirlestur um félagslega töfra og Tómas Helgi trúbador mætti með gítarinn og söng nokkur vel valin lög. Boðið var upp á súpu og brauð eins og venjulega og var verðinu…
Eins og verið hefur um árabil sá ferðanefnd Félags eldri borgara í Kópavogi um það verkefni að útvega félagsmönnum sínum aðgang ásamt farartæki til að sjá nýárssýningu í Hörpu nú um áramótin. Árlegir Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á vegum félagsins mættu 110 félagar í Hörpu og þurfti tvær rútur sem okkar frábæra lið hjá Teiti Jónassyni…
Fimmtudaginn 10. des. og föstudaginn 11. des. voru haldin jólahlaðborð í Gjábakka og Gullsmára. Góð mæting og góður matur. Hér eru nokkrar myndir frá Gullsmára.






