Fyrsta laugardagsopnun ársins var í Gullsmára laugardaginn 17. janúar. Mæting var góð, rúmlega 51 manns mættu. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði var með mjög áhugaverðan fyrirlestur um félagslega töfra og Tómas Helgi trúbador mætti með gítarinn og söng nokkur vel valin lög. Boðið var upp á súpu og brauð eins og venjulega og var verðinu stillt í hóf.
Því miður verður ekki hægt að hafa laugardagsopnanir í Gjábakka í vetur en opið verður í Gullsmára alla laugardaga fram á vor og stefnt er að því að opið í Boðanum sömuleiðis. Verður það tilkynnt nánar síðar.

