Author Archives: febk

Vel heppnuð ferð um Hvalfjörð og Akranes

🔸 Félag eldri borgara í Kópavogi fór í dag í fróðlega og skemmtilega dagsferð um Hvalfjörð og Akranes. Veðrið var gott, þurrt og milt, þótt sólin léti ekki sjá sig. 🔸Fyrsti viðkomustaður dagsins var Hvalveiðisafnið að Miðsandi. Þar tók Gunnlaugur á móti hópnum, sýndi safnið og fræddi ferðafélagana um sögu hvalveiða við Ísland, aðferðirnar við…

KIRKJUFERÐ UM SUÐURLAND

Á þriðjudeginum 25. ágúst fór FEBK með 40 manna hóp eldri borgara í skoðunarferð um Suðurland þar sem við heimsóttum þrjár sögufrægar kirkjur og hittum fyrir sóknarpresta sem tóku á móti okkur með fræðslu og skemmtilegum sögum. 🔸 Ferðin hófst í Hruna þar sem við hittum séra Óskar H. Óskarsson sem sýndi okkur kirkju og…

FERÐ TIL VESTMANNAEYJA 12. ÁGÚST

Þrjátíu og fimm félagsmenn tóku þátt í þessari ferð sem tókst afar vel. Veðrið var ekki það allra besta, en svo sannarlega truflaði það ferðina lítið. Lagt var af stað frá Kópavogi kl. 7:30 og ekið sem leið liggur til Landeyjahafnar. Ferjan Herjólfur flutti síðan hópinn út til Vestmannaeyja. Í Eyjum bættist í hópinn afar…

RAFRÆNT FÉLAGSSKÍRTEINI

FEBK hefur gert samning við rekstraraðila SPARA-appsins um að bjóða félagsmönnum upp á rafrænt félagsskírteini í appinu. Með þessari lausn geta félagsmenn ekki aðeins sýnt félagsskírteini sitt í símanum heldur einnig séð öll þau tilboð og afslætti sem Landssamband eldri borgara hefur samið um við fjölmörg fyrirtæki. Jafnframt er þessi leið hagkvæm fyrir félagið. Rafræna…

SKEMMTIFERÐ Í GUÐMUNDARLUND

Hin árlega sumarskemmtun FEBK, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar í Guðmundarlundi var haldin í dag, 23. júní. Rúmlega 200 félagsmenn létu sjá sig og nutu samverunnar í fallegu umhverfi. Veðrið lék við gesti; logn, þurrt og milt, og því var einstaklega notalegt að sitja úti á pallinum við glæsilegt hús Skógræktarfélagsins. Stutt ávörp fluttu Elísabet Berglind…

GLJÚFRASTEINN – HÚS SKÁLDSINS

Félagar í Félagi eldri borgara í Kópavogi fóru Í gær í skemmtilega heimsókn að Gljúfrasteini, heimili Halldórs og Auðar Laxness í Mosfellsbæ. Fararstjóri ferðarinnar var Sigríður S. Helgadóttir og fór það henni afar vel úr hendi. Heimsóknin var bæði fróðleg og áhugaverð. Gestir fengu að skoða heimili skáldshjónanna og fræðast um líf þeirra og störf….