Afsláttarbók og Spara-appið

Afsláttarbókin 2024
Smellið hér eða á mynd til að skoða bókina.
Afsláttarbókin liggur frammi í félagsmiðstöðvum og á skrifstofu félagsins í Gullsmára.

Félagsskírteini
Félagsskírteini er sent til félagsmanna þegar árgjald hefur verið greitt. 

ATH. Félagsskírteinið sem sent var út á síðasta ári gildir til 31. mars 2025.

SPARA-APPIÐ

Nú geta félagsmenn FEBK nýtt sér afsláttarappið SPARA til að skoða alla afslætti og tilboð sem eru í appinu. Allir afslættirnir, sem eru í Afsláttarbókinni 2024 eru líka aðgengilegir í gegnum SPARA.
Hægt er að nálgast appið bæði í App store fyrir iPhone og iPad notendur, og í Play store fyrir notendur sem hafa Android síma eða Android spjaldtölvu. Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan til að opna leiðbeiningar um uppsetningu og notkun appsins.

Rafrænt tilboðskort 

Innifalið í SPARA appinu er rafrænt tilboðskort sem félagsmenn geta framvísað í stað plastkortsins. Núverandi félagsskírteini gildir einnig áfram til 31. mars 2025. Smella þarf á merki LEB til að kalla kortið fram í appinu.
Spara - Leiðbeiningar