Hin árlega skemmtiferð FEBK, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar í Guðmundarlund var farin 18. júní. Rúmlega 230 félagsmenn voru skráðir í ferðina.Veðrið var þungbúið og rigning af og til og því fór skemmtunin fram að mestu innandyra og var bekkurinn þétt setinn. Gleðigjafarnir Gulli og Siggi, harmónikkuleikarar, ásamt Óla Grindvíkingi gítarleikara, sáu um að skemmta…
Author Archives: febk
Í dag fóru 16 félagsmenn FEBK í heimsókn í Kvikmyndasafn Íslands í Hafnarfirði. Við fengum góðar móttökur hjá Þóru Sigríði Ingólfsdóttur, forstöðumanni safnsins, og Gunnari Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi varðveislu og rannsókna. Margir kannast við Gunnar frá þáttunum sem hann og Egill Helgason voru með á RÚV. Hlutverk Kvikmyndasafns Íslands er margþætt. Meginhlutverk safnsins er að…
Tvö tveggja manna herbergi laus vegna forfalla í ferðina um Norðurland-Eystra 24.-26. júní. Skráning og upplýsingar undir Ferðalög hér fyrir neðan.
Þriðjudaginn 27. maí kl. 10:00 var lagt af stað frá Gullsmára og ferðinni heitið á Reykjanes. Leiðsögumaður í ferðinni var Jónatan Garðarsson, útvarpsmaður með meiru. Hann er mjög fróður um jarðfræði og sögu svæðisins. ♦ Fyrst lá leiðin um Krýsuvíkurveg að Kleifarvatni, þar var stoppað á Syðristapa þar sem gott útsýni er yfir vatnið. Hverasvæðið…
Fimmtudaginn 12. júní verður farið í heimsókn í Kvikmyndasafn Íslands. Lagt af stað frá Gullsmára kl. 13:30 og komið til baka kl. 15:00. Verð kr. 3.000. Fararstjóri er Helgi Ágústsson. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan. Einnig er hægt að skrá sig í ferðina á skrifstofu félagsins á mánudögum og miðvikudögum kl. 10:00-11:30 eða í…






