Í mars 2023 var ég beðinn um að ganga í stjórn Félags eldri borgara í Kópavogi. Ég var tregur til í upphafi og hugsaði sem svo: „Hvað hef ég fram að færa varðandi eldri borgara?“ Ég sló samt til og var kjörinn í stjórn sem varaformaður og síðar sem formaður. Ég hef ekki séð eftir þessari ákvörðun einn einasta dag.
Þetta er búið að vera mjög gefandi starf. Ég hef lært mjög mikið og eignast fullt af nýjum vinum. Stundum er mikið að gera en það er bara fínt. Það er svo góð tilfinning að finna að maður getur enn gert gagn þótt kominn sé á efri ár.
Nú vantar okkur liðsauka. Aðalfundur FEBK verður haldinn í mars. Þá verður kosin ný stjórn og hafa nokkrir stjórnarmenn ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Einnig vantar fólk til starfa í nefndum félagsins. Ég skora því á ykkur, kæru félagsmenn, að ganga til liðs við okkur í stjórninni og nefndum. Við tökum vel á móti ykkur. Þeir sem hafa áhuga á að leggja félaginu lið eru beðnir um að senda póst á netfangið febk@febk.is með helstu upplýsingum um sig sem fyrst og við svörum eins fljótt og auðið er.
Í eldri borgurum býr kraftur, þekking og reynsla. Nýtum hana til hagsbóta fyrir samborgara okkar.
Geir Þórðarson, formaður FEBK.

