Vínartónleikar 2026

Eins og verið hefur um árabil sá ferðanefnd Félags eldri borgara í Kópavogi um það verkefni að útvega félagsmönnum sínum aðgang ásamt farartæki til að sjá nýárssýningu í Hörpu nú um áramótin. Árlegir Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á vegum félagsins mættu 110 félagar í Hörpu og þurfti tvær rútur sem okkar frábæra lið hjá Teiti Jónassyni ehf. sá um, til að flytja þennan fjölda. Skemmtiferð þessi tókst afar vel, allir ánægðir og glaðir. Félagið okkar FEBK mun áfram, meðan áhugi er fyrir hendi, sjá um að gefa þeim félagsmönnum sem þess óska kost á að sjá Vínartónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands.