Author Archives: febk

Betra er heilt en vel gróið – Fræðsla um byltur og byltuvarnir

Um 100 félagsmenn FEBK sóttu fræðsluerindi Berglindar Indriðadóttur iðjuþjálfa um byltur og byltuvarnir í Gjábakka, Boðanum og Gullsmára 3. og 4. nóvember. Góð þátttaka var á öllum stöðunum og gerðu gestir góðan róm að fræðslunni. Berglind hefur víðtæka reynslu af endurhæfingu á bráða- og öldrunardeildum Landspítala, í heimahjúkrun og á hjúkrunarheimilum. Hún sinnir einnig kennslu…

Góð fræðsla um þjónustu Velferðarsviðs Kópavogs

Í dag, miðvikudaginn 28. október, fengum við hjá FEBK góða gesti í Gullsmára frá Velferðarsviði Kópavogsbæjar. Um 50 félagsmenn komu á erindið. Þær Jóna Hulda Pálsdóttir, félagsráðgjafi eldra fólks, og Halldóra María Hauksdóttir, þjónustustjóri heimaþjónustu, komu til okkar og fræddu félagsmenn um þá fjölbreyttu þjónustu sem Kópavogsbær býður eldra fólki. Þær fóru meðal annars yfir…

Vel sótt og áhugavert fræðsluerindi Heilahjálpar í Gullsmára

Um 50 félagsmenn FEBK mættu á fróðlegt og áhugavert fræðsluerindi Heilahjálpar – samtaka um heilabilun (áður Alzheimersamtakanna) í Gullsmára í dag, miðvikudaginn 14. október. Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, fjallaði um heilabilun og þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og…

Áhugaverður fyrirlestur um erfðamál í Gullsmára

Hildur Sólveig Pétursdóttir, hæstaréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum, hélt í dag fróðlegan fyrirlestur um erfðamál í Gullsmára á vegum Félags eldri borgara í Kópavogi. Um 30 manns sóttu fyrirlesturinn. Hildur fór meðal annars yfir helstu reglur erfðaréttar, gerð og gildi erfðaskráa og réttindi fólks til setu í óskiptu búi. Fyrirlesturinn vakti mikinn áhuga meðal gesta og…

Á Njáluslóðum í góðum félagsskap

Ferðin á Njáluslóðir heppnaðist mjög vel þótt hópurinn væri heldur fámennur. Það rættist vel úr veðrinu og leiðsögn Guðbjarnar Sigurmundssonar var upp á tíu. Lagt var af stað frá Gullsmára. Á leiðinni austur sagði Guðbjörn frá Njálu, helstu sögupersónum hennar og þeim átökum sem tengjast stöðunum sem við ætluðum að heimsækja. Þannig fengu sögurnar að…