Þriðja gervigreindarnámskeiðið

Í dag hélt Stefán Atli Rúnarsson námskeið í Gjábakka fyrir félagsmenn FEBK. Þetta var þriðja námskeiðið sem Stefán heldur fyrir okkur og hefur verið fullt á þeim öllum. Vel yfir 200 félagsmenn hafa sótt þessi vinsælu námskeið.

Stefán er þekktur fyrir að útskýra flókin mál á skýran, aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Í dag kynnti hann ChatGPT og sýndi hvernig gervigreind getur verið hagnýtt verkfæri í daglegu lífi – hvort sem það er til að afla upplýsinga, fá aðstoð við textagerð, rifja upp þekkingu eða læra eitthvað nýtt.

Myndin var tekin á námskeiðinu og þar voru þátttakendur – með aðstoð gervigreindar – breytt í Lego-fígúrur.