Hin árlega sumarskemmtun FEBK, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar í Guðmundarlundi var haldin í dag, 23. júní. Rúmlega 200 félagsmenn létu sjá sig og nutu samverunnar í fallegu umhverfi.
Veðrið lék við gesti; logn, þurrt og milt, og því var einstaklega notalegt að sitja úti á pallinum við glæsilegt hús Skógræktarfélagsins.
Stutt ávörp fluttu Elísabet Berglind Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar, Orri Vignir Hlöðversson varaforseti bæjarstjórnar, Kristinn H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, og Geir Þórðarson formaður Félags eldri borgara í Kópavogi.
Tónlist og gleði settu svip sinn á samkomuna þegar þeir Gulli og Siggi á harmónikkum og Óli Grindvíkingur á gítar tóku nokkur góð lög. Dóra slóst í hópinn og söng með af sinni alkunnu gleði. Gestum var boðið upp á smásamlokur, gos og aðra létta drykki.
Dagurinn heppnaðist afar vel og skemmtu allir sér hið besta.


















