FERÐ TIL VESTMANNAEYJA 12. ÁGÚST

Þrjátíu og fimm félagsmenn tóku þátt í þessari ferð sem tókst afar vel. Veðrið var ekki það allra besta, en svo sannarlega truflaði það ferðina lítið.
Lagt var af stað frá Kópavogi kl. 7:30 og ekið sem leið liggur til Landeyjahafnar. Ferjan Herjólfur flutti síðan hópinn út til Vestmannaeyja.
Í Eyjum bættist í hópinn afar fær leiðsögumaður, Arnar Sigurmundsson, og stóð þessi ágæti maður svo sannarlega undir nafni sem frábær uppljóstrari og leiðsögumaður.
Ekið var um eyjuna og meðal annars skoðað athafnasvæði Laxeyjar, sem rekur landeldi í Vestmannaeyjum. Skansinn var skoðaður, en þar var áður fyrr virki, og síðan var Landakirkja heimsótt þar sem farið var vel yfir sögu kirkjunnar. Þá voru söfnin Eldheimar og Safnheimar heimsótt, auk þess sem ekið var um Stórhöfða, Dalinn og víðar um eyjuna.
Hópurinn snæddi hádegisverð og kvöldverð hjá Einsa Kalda. Í hádeginu var boðið upp á þorskhnakka og í kvöldverð lambalundir. Frábær matur og ánægður og mettur hópur tók síðan ferjuna Herjólf til baka kl. 20:00.
Allt í allt var þetta einstaklega vel heppnuð ferð og greinilegt að þátttakendur kunnu vel að meta bæði dagskrána, leiðsögnina og góðan mat.