Félagar í Félagi eldri borgara í Kópavogi fóru Í gær í skemmtilega heimsókn að Gljúfrasteini, heimili Halldórs og Auðar Laxness í Mosfellsbæ. Fararstjóri ferðarinnar var Sigríður S. Helgadóttir og fór það henni afar vel úr hendi.
Heimsóknin var bæði fróðleg og áhugaverð. Gestir fengu að skoða heimili skáldshjónanna og fræðast um líf þeirra og störf. Sagt var frá mörgu skemmtilegu úr daglegu lífi þeirra, sem vakti mikla athygli og ánægju meðal ferðafélaganna.
FEBK þakkar Sigríði fyrir vel heppnaða ferð og öllum þátttakendum fyrir ánægjulega samveru.






