🔸 Félag eldri borgara í Kópavogi fór í dag í fróðlega og skemmtilega dagsferð um Hvalfjörð og Akranes. Veðrið var gott, þurrt og milt, þótt sólin léti ekki sjá sig.
🔸Fyrsti viðkomustaður dagsins var Hvalveiðisafnið að Miðsandi. Þar tók Gunnlaugur á móti hópnum, sýndi safnið og fræddi ferðafélagana um sögu hvalveiða við Ísland, aðferðirnar við veiðarnar og vinnsluna sem þeim fylgdi. Heimsóknin vakti mikinn áhuga og gaf góða innsýn í merkan þátt íslenskrar atvinnusögu.
🔸Þaðan lá leiðin að Hernámssetrinu á Hlöðum. Þar gæddi hópurinn sér á ljúffengri súpu og brauði áður en Guðjón Sigmundsson, betur þekktur sem Gaui litli, sagði frá safninu og hinni merku sögu hernámsáranna í Hvalfirði. Gaui hefur safnað munum og heimildum í um 25 ár og miðlaði af mikilli þekkingu og lifandi frásagnargleði. Safnið geymir einstakar minjar frá miklum umbrotatímum, þegar kyrrlátt samfélag við Hvalfjörð varð skyndilega mikilvægur vettvangur heimsviðburða.
🔸Næst var haldið til Akraness og Akranesviti heimsóttur. Hilmar Sigvaldason, umsjónarmaður vitans, tók vel á móti hópnum. Vitinn er einstakur staður, ekki aðeins vegna útsýnisins heldur einnig hins sérstaka hljómburðar inni í honum. Einn ferðafélaganna tók lagið og söngurinn ómaði fagurlega um vitann við góðar undirtektir viðstaddra.
🔸Síðasti viðkomustaður ferðarinnar var Byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Þar var safnið skoðað og ferðafélagar kynntu sér sögu atvinnulífs og búsetu á Akranesi og í nærsveitum. Heimsókninni lauk síðan á notalegum nótum með kaffi og kleinum.
🔸Fararstjórar og leiðsögumenn dagsins voru þeir Steini Þorvaldsson og Helgi Ágústsson. Þeir miðluðu fróðleik af sinni alkunnu snilld og eiga bestu þakkir skildar fyrir skemmtilega og vel skipulagða ferð.
🔸Þetta var afar vel heppnaður dagur, fullur af fróðleik, skemmtilegum upplifunum og góðri samveru. FEBK þakkar öllum ferðafélögum kærlega fyrir þátttökuna og ánægjulegan dag.



