Á þriðjudeginum 25. ágúst fór FEBK með 40 manna hóp eldri borgara í skoðunarferð um Suðurland þar sem við heimsóttum þrjár sögufrægar kirkjur og hittum fyrir sóknarpresta sem tóku á móti okkur með fræðslu og skemmtilegum sögum.
🔸
Ferðin hófst í Hruna þar sem við hittum séra Óskar H. Óskarsson sem sýndi okkur kirkju og safnaðarheimili og sagði okkur sögu staðarins. Kirkjustaðurinn er einstaklega fallegur og stendur hátt upp við klettahæð, fallegt prestsetur og kirkjugarður. Kirkjan er einstaklega falleg járnvarin timburkirkja frá 1865. Flestir tengja staðinn við þekkta sögu um Dansinn í Hruna.
🔸
Frá Hruna hélt hópurinn að Flúðum þar sem við fengum hádegishlaðborð á Farmers Bistro, dásamlega sveppasúpu og brauð og alls konar sultur og pestó með.
🔸
Þaðan var haldið að Bræðratungu, þeim sögufræga stað þar sem við skoðuðum pínulitla en fallega kirkju. Þarna hittum við Kristínu Tómasdóttur sem er prestur í Skálholtssókn. Með henni kom djákni sóknarinnar, afskaplega hressar konur sem sögðu okkur sögu kirkjunnar. Skálholtsprestakall samanstendur af 12 kirkjum í 8 sóknum.
🔸
Bræðratungukirkja er ca 35 fm timburkirkja frá 1911, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni húsasmíðameistara. Kirkjan er timburkirkja klædd bárujárni á steinsteyptum sökkli, einnig á alveg frábærum útsýnisstað þar sem sést vel yfir. Heimsókninni lauk með því að hópurinn söng saman einn sálm en smekkfullt var í kirkjunni þegar við vorum öll sest inn.
🔸
Loks var haldið í Skálholt og sá sögufrægi staður skoðaður í fylgd með presti og djákna en þarna bættist við kirkjuvörðurinn sem var auðvitað hafsjór af fróðleik og leiddi okkur um staðinn þvers og kruss.
🔸
Veðrið var yndislegt, þurrt og sólarglennur af og til. Þessari skoðun lauk um miðjan dag svo við ákváðum að taka heimleiðina gegnum Þingvelli þar sem fegurðin blasti vel við úr rútunni. Þar gerðum við stutt stopp í Þjónustumiðstöðinni þar sem allir fengu sér eitthvað að drekka og jafnvel með því. Ferðin gekk vel og allir glaðir þegar við renndum í hlað í Gullsmára síðdegis.
🔸
Ferðanefnd FEBK skipulagði ferðina. Fararstjóri var Sigríður S. Helgadóttir°.


