Handverksýning var haldin í Boðanum laugardaginn 24. maí. Margvíslegt handverk og listmunir voru til sýnis, t.d. tréskurður, myndlist, pennasaumur, prjónað og heklað handverk, málmlist, bútasaumur og fleira. Sönghópurinn Söngelskurnar skemmtu við góðar undirtektir gesta. Mjög skemmtilegur sönghópur. Aðsókn var mjög góð, um 120 gestir. Kaffi og meðlæti í boði hússins. Flott sýning og góð skemmtun….
Author Archives: febk
Félagsmenn FEBK sem heimsóttu Prag í fjóra daga 18.-22. maí eru afar ánægðir með vel heppnaða ferð. Prag er einstaklega glæsileg borg, með sína miklu sögu og einstaklega fallegar byggingar og af mörgu talin til fegurstu borga Evrópu. Borg menningar, mennta og lista. Elstu hverfin, þar á meðal kastalinn í Prag, eru á heimsminjaskrá UNESCO….
Í SPARA-APPINU GETA FÉLAGSMENN FEBK SKOÐAÐ NÝJUSTU TILBOÐIN OG ALLA AFSLÆTTI SEM ERU Í AFSLÁTTARBÓKINNI. Innifalið í SPARA-appinu er rafrænt félagsskírteini/afsláttarkort sem félagsmenn geta framvísað í stað plastkortsins. Núverandi félagsskírteini gildir einnig áfram til 31. mars 2027. Smella þarf á merki LEB til að kalla kortið fram í appinu.
Vorsýningar voru í Gullsmára og Gjábakka í gær og myndlistasýning í Boðanum. Til sýnis var margvíslegt handverk og listmunir sem unnir hafa verið í vetur. Í Gjábakka voru viðfangsefnin tréskurður, bókband, postulínsmálun, handavinna og vatnlitamálun. Í Gullsmára voru viðfangsefnin ljósmyndir, handavinna, tréskurður, myndlist, bútasaumur, postulínsmálun, fluguhnýtingar og málm- og silfursmíði. Í Boðanum…
LEB BLAÐIÐ Tímarit Landssambands eldri borgara er komið út. Búið er að dreifa blaðinu í félagsmiðstöðvar eldri borgara og geta félagsmenn FEBK nálgast blaðið þar eða smellt á tengilinn hér fyrir neðan til að skoða vefútgáfu af blaðinu eða hlaða niður PDF-útgáfu. LEB-blaðið – Vefútgáfa LEB-blaðið 2025 – PDF útgáfa
Landsfundur LEB 2025 var haldinn í Reykjanesbæ 29. apríl sl. Góð mæting var á fundinn og met þátttaka. Um 170 fulltrúar frá miklum meirihluta félaga eldri borgara, vítt og breytt um landið og samtals um 90 manns fylgdust með fundinum í streymi. Fulltrúar FEBK. Frá vinstri: Guðrún Pétursdóttir, Stefanía Björnsdóttir, Auður Gísladóttir, Steini Þorvaldsson,…






