Kvikmyndasafn Íslands

Í dag fóru 16 félagsmenn FEBK í heimsókn í Kvikmyndasafn Íslands í Hafnarfirði. Við fengum góðar móttökur hjá Þóru Sigríði Ingólfsdóttur, forstöðumanni safnsins, og Gunnari Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi varðveislu og rannsókna. Margir kannast við Gunnar frá þáttunum sem hann og Egill Helgason voru með á RÚV.

Hlutverk Kvikmyndasafns Íslands er margþætt. Meginhlutverk safnsins er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Jafnframt gegnir safnið því hlutverki að sjá um viðhald og endurgerðir á kvikmyndum safnsins og skapa fræðimönnum og fagmönnum aðstöðu til að stunda kvikmyndafræðilegar rannsóknir.

Áður en safnið var skoðað var boðið upp á kaffi, kex og súkkulaði. Gestum var skipt í tvo hópa og fóru Þóra og Gunnar hvor með sinn hópinn um safnið og sögðu frá. Þar var margt forvitnilegt að sjá, t.d. filmusafnið, gamlar sýningarvélar og kvikmyndatökuvélar. Að lokinni skoðun á safninu fræddi Þóra okkur um starfsemi safnsins og Gunnar sýndi okkur brot úr gömlum kvikmyndum og sagði skemmtilega frá.

Skemmtileg ferð og fróðleg.