Góð fræðsla um þjónustu Velferðarsviðs Kópavogs

Í dag, miðvikudaginn 28. október, fengum við hjá FEBK góða gesti í Gullsmára frá Velferðarsviði Kópavogsbæjar. Um 50 félagsmenn komu á erindið.
Þær Jóna Hulda Pálsdóttir, félagsráðgjafi eldra fólks, og Halldóra María Hauksdóttir, þjónustustjóri heimaþjónustu, komu til okkar og fræddu félagsmenn um þá fjölbreyttu þjónustu sem Kópavogsbær býður eldra fólki.
Þær fóru meðal annars yfir félagslega ráðgjöf, heimaþjónustu og ýmis úrræði sem geta auðveldað eldra fólki daglegt líf og stuðlað að auknu öryggi og sjálfstæði.
Erindið tókst mjög vel og skapaðist lífleg og gagnleg umræða. Félagsmenn voru duglegir að spyrja og gestirnir svöruðu fjölmörgum spurningum af mikilli þekkingu og skýrleika. Það var greinilegt að mikill áhugi er á þessum málum.
Það er mikilvægt að eldra fólk þekki þá þjónustu sem stendur til boða, viti hvert hægt er að leita og hvernig hægt er að sækja um aðstoð þegar hennar er þörf.
Við hjá FEBK þökkum Jónu Huldu og Halldóru Maríu kærlega fyrir fróðlegt og gagnlegt erindi og góð svör við spurningum félagsmanna.
Ef þú vilt fræðast um þjónustu Velferðarsviðs er tengill inn á vef Kópavogsbæjar hér: https://www.kopavogur.is/thjonusta/velferd-ibua/eldra-folk