Um 100 félagsmenn FEBK sóttu fræðsluerindi Berglindar Indriðadóttur iðjuþjálfa um byltur og byltuvarnir í Gjábakka, Boðanum og Gullsmára 3. og 4. nóvember. Góð þátttaka var á öllum stöðunum og gerðu gestir góðan róm að fræðslunni.
Berglind hefur víðtæka reynslu af endurhæfingu á bráða- og öldrunardeildum Landspítala, í heimahjúkrun og á hjúkrunarheimilum. Hún sinnir einnig kennslu og fræðslu á vegum Farsællar öldrunar – Þekkingarmiðstöðvar. Í erindunum fjallaði hún um hvernig draga má úr byltuhættu og auka öryggi, með sjálfstæði og virkni í daglegu lífi að leiðarljósi.
BYKO var samstarfsaðili FEBK í verkefninu. Þorvaldur Gísli Kristinsson, starfsmaður BYKO, kynnti ýmsar öryggisvörur, meðal annars slökkvitæki, reykskynjara, stuðningshandföng í sturtu, næturljós og mannbrodda. Félagsmenn FEBK njóta góðs afsláttar af þessum vörum hjá BYKO.
VÍS gaf FEBK endurskinsmerki sem dreift var ókeypis til félagsmanna á fræðsluerindunum. Merkin liggja einnig frammi í Boðanum, Gullsmára og Gjábakka á meðan birgðir endast. FEBK þakkar VÍS kærlega fyrir gjöfina og hvetur félagsmenn til að næla sér í merki og nota þau.
Byltur og önnur slys geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir eldra fólk. Með einföldum öryggisráðstöfunum má þó draga úr hættunni. Markmið fræðslunnar er að hjálpa fólki að njóta góðs og virks lífs á efri árum, með auknu öryggi og sjálfstæði.
Geir Þórðarson
formaður FEBK


