Á Njáluslóðum í góðum félagsskap

Ferðin á Njáluslóðir heppnaðist mjög vel þótt hópurinn væri heldur fámennur. Það rættist vel úr veðrinu og leiðsögn Guðbjarnar Sigurmundssonar var upp á tíu.
Lagt var af stað frá Gullsmára. Á leiðinni austur sagði Guðbjörn frá Njálu, helstu sögupersónum hennar og þeim átökum sem tengjast stöðunum sem við ætluðum að heimsækja. Þannig fengu sögurnar að fylgja okkur alla leiðina.
Eftir stutt stopp á Hellu var haldið að Gunnarssteini, þar sem frægur bardagi sögunnar átti sér stað. Þaðan lá leiðin að Keldum, þar sem við skoðuðum aðstæður og hlýddum á frásögn Guðbjarnar.
Á Hvolsvelli beið okkar frábær kjötsúpa sem kom sér vel áður en ferðinni var haldið áfram að Hlíðarenda í Fljótshlíð. Síðasta stoppið á Njáluslóðum var við Stóra Dímon. Þaðan héldum við heim á leið eftir fróðlegan og skemmtilegan dag.
Þetta var síðasta ferð FEBK innanlands í sumar.