Hildur Sólveig Pétursdóttir, hæstaréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum, hélt í dag fróðlegan fyrirlestur um erfðamál í Gullsmára á vegum Félags eldri borgara í Kópavogi.
Um 30 manns sóttu fyrirlesturinn. Hildur fór meðal annars yfir helstu reglur erfðaréttar, gerð og gildi erfðaskráa og réttindi fólks til setu í óskiptu búi.
Fyrirlesturinn vakti mikinn áhuga meðal gesta og fjölmargar spurningar bárust að honum loknum. Hildur svaraði spurningum af mikilli þekkingu og skýrleika og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður um þetta mikilvæga málefni.
FEBK þakkar Hildi Sólveigu kærlega fyrir afar áhugavert og upplýsandi erindi og gestum fyrir góða þátttöku.


