Nú stendur yfir golfnámskeið fyrir félagsmenn FEBK í Kórnum, íþróttamiðstöð HK. Námskeiðið hófst 1. október. Um er að ræða stöðvakennslu í golfhermi og æfingar á puttvelli í 8 skipti. Leiðbeinandi er Hlöðver S. Guðnason sem er PGA-menntaður golfkennari hjá GKG. Fréttaritari FEBK leit við í Kórnum í vikunni. Þátttakendur á námskeiðinu voru á einu máli…
Category Archives: Fréttir
5. nóvember var stofnaður nýr ljósmyndaklúbbur FEBK í Boðanum. Fékk hann heitið LJÓSBOÐINN. Klúbburinn mun hittast tvisvar í mánuði og klúbbfélagar munu sýna myndir sínar og ræða um myndirnar og tæknileg atriði við myndatökur. Fundir klúbbsins eru eingöngu ætlaðir klúbbfélögum. Hægt er að senda fyrirspurnir um LJÓSBOÐANN á netfangið febk@febk.is.
Félag eldri borgara í Kópavogi hefur samið við Pílufélag Kópavogs (PFK) um að halda annað pílunámskeið fyrir félagsmenn FEBK þar sem síðasta tókst mjög vel. 🎯 Um er að ræða sjö skipta námskeið sem verður á fimmtudögum kl. 17:00–18:00 á tímabilinu 6. nóvember – 18. desember. Öll aðstaða er til fyrirmyndar í íþróttahúsi HK Digranesi…
Lagt var af stað úr Kópavogi rúmlega 9 þriðjudaginn 7. okt. Fyrsta stopp var á Hakinu á Þingvöllum. Tilgangur ferðarinnar var m.a. að skoða haustlitina á Þingvöllum en því miður var laufið að mestu fallið og því litadýrðin ekki sú sem við áttum von á. Eftir stoppið á Þingvöllum lá leiðin um Lyngheiðina að Sólheimum…
Það var Fræðslufyrirlestur um svefn og mikilvægi hans á vegum Virkni og Vellíðan í Gullsmára í gær (þriðjudaginn 30. september). Mjög áhugaverður og fróðlegur fyrirlestur og mæting var góð, en rúmlega 50 manns mættu.






