LJÓSBOÐINN – NÝR LJÓSMYNDAKLÚBBUR

5. nóvember var stofnaður nýr ljósmyndaklúbbur FEBK í Boðanum. Fékk hann heitið LJÓSBOÐINN. Klúbburinn mun hittast tvisvar í mánuði og klúbbfélagar munu sýna myndir sínar og ræða um myndirnar og tæknileg atriði við myndatökur. Fundir klúbbsins eru eingöngu ætlaðir klúbbfélögum.
Hægt er að senda fyrirspurnir um LJÓSBOÐANN á netfangið febk@febk.is.