GOLFNÁMSKEIÐ SLÆR Í GEGN

Nú stendur yfir golfnámskeið fyrir félagsmenn FEBK í Kórnum, íþróttamiðstöð HK. Námskeiðið hófst 1. október. Um er að ræða stöðvakennslu í golfhermi og æfingar á puttvelli í 8 skipti. Leiðbeinandi er Hlöðver S. Guðnason sem er PGA-menntaður golfkennari hjá GKG.
Fréttaritari FEBK leit við í Kórnum í vikunni. Þátttakendur á námskeiðinu voru á einu máli um að námskeiðið væri bæði gagnlegt og skemmtilegt og var á mörgum að heyra að þau vildu koma aftur á námskeið hjá Hlöðveri eftir áramót og að minnsta kosti fyrir sumarið enda Hlöðver frábær leiðbeinandi.