Þann 11. maí n.k. verður haldin fyrsta keppni í götugöngu sem farið hefur fram á Íslandi. Leiðin sem verður gengin er 3.4km sem byrjar niðri í Breiðablik og gengið verður um Kópavogsdalinn. Keppnin er hugsuð fyrir alla 60 og eldri á Íslandi. Gaman væri ef sem flestir myndu koma og taka þátt. Ræst verður frá…
Category Archives: Fréttir
Á Landsfundi LEB 2023 sem haldinn var í Borgarnesi 9. maí sl voru samþykktar ályktanir um kjaramál og húsnæðismál. Eldra fólk getur ekki beðið lengur. Nú verður að hefjast handa Landssamband eldri borgara lýsir yfir miklum vonbrigðum með aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í kjaramálum eldra fólks. Þrátt fyrir yfirlýst markmið í stjórnarsáttmálanum og kosningaloforð um að draga…
Um helgina verður opið í Félagsmiðstöðvum eldri borgara í Kópavogi þar sem fólk sýnir handverk sem unnið var í vetur. Það er misjafnt hvað gert var á hverjum stað. Eftirtalin viðfangsefnin voru í einni eða fleiri félagsmiðstöðvum: myndlist, postulínsmálun, tréskurður, handavinna (prjón), silfursmíði, bútasaumur, pennasaumur, ljósmyndun og fluguhnýtingar. Kaffi og kleinur verða í boði á…
Öll sæti í ferð okkar til Krakow seldust upp og greinileg eftirspurn er eftir að komast í ferðina svo málið var athugað betur. Viðbótarsæti fengust en á aðeins hærra verði en þau fyrri. Skráningarlistar eru í félagsmiðstöðvunum og einnig er hægt að skrá sig á skrifstofunni. Athugið að það þarf að greiða staðfestingargjaldið 40.000 kr/mann…
Nú er búið að prenta Afsláttarbók LEB 2023. LEB stendur fyrir Landssamband eldri borgara. Tilgreinda afslætti fá þeir sem geta framvísað gildu árskorti einhvers félags eldri borgara. Aðalfundur FEBK verður þriðjudaginn 21. mars kl. 16:00 í félagsheimilinu Gullsmára. Þá verður árgjaldið ákveðið og svo hefst innheimta þess og ný félagsskírteini með breyttum lit berast ykkur…
Á aðalfundi FEBK 21. mars 2023 lét Ragnar Jónasson af formennsku og Margrét Halldórsdóttir tók við sem nýr formaður. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt. Á fundinum var árgjaldið fyrir árin 2023 og 2024 ákveðið 4.000 kr. fyrir hvort ár. Ný félagsskírteini í nýjum lit verða tilbúin fljótlega og innheimta félagsgjalda er að fara í bankainnheimtu….