Götuganga

Þann 11. maí n.k. verður haldin fyrsta keppni í götugöngu sem farið hefur fram á Íslandi. Leiðin sem verður gengin er 3.4km sem byrjar niðri í Breiðablik og gengið verður um Kópavogsdalinn.

Keppnin er hugsuð fyrir alla 60 og eldri á Íslandi.

Gaman væri ef sem flestir myndu koma og taka þátt.

Ræst verður frá Breiðablik klukkan 15:00.

Keppt verður í fjórum aldursflokkum sem eru:
60-69 ára
70-79 ára
80-89 ára
90+

Veitt verða vegleg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki fyrir sig.

Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar eldra fólks og hversu fjölbreytt heilsuefling er í boði víðsvegar um landið. Gaman væri að sjá keppendur frá fjölda íþróttafélaga sem bjóða upp á hreyfingu fyrir þennan aldurshóp.

Slóð á skráningu er hér.
Nauðsynlegt að allir sem eru 60 ára og eldri séu skráðir til leiks en ekkert þátttökugjald er í gönguna.
https://netskraning.is/virkni-og-vellidan/

Hér er einnig slóð að viðburðinum
https://www.facebook.com/events/737307764754663/?ref=newsfeed

Hlökkum til að sjá ykkur.