Vorsýning á handverki í Félagsmiðstöðvunum

Um helgina verður opið í Félagsmiðstöðvum eldri borgara í Kópavogi þar sem fólk sýnir handverk sem unnið var í vetur.
Það er misjafnt hvað gert var á hverjum stað.
Eftirtalin viðfangsefnin voru í einni eða fleiri félagsmiðstöðvum:
myndlist, postulínsmálun, tréskurður, handavinna (prjón), silfursmíði, bútasaumur, pennasaumur, ljósmyndun og fluguhnýtingar.

Kaffi og kleinur verða í boði á öllum stöðum.
Opið bæði á laugardag og sunnudag (6. og 7. maí) milli kl. 13 og 17.

Endilega litið við og sjáið hvað hægt er að fást við og komið svo í haust og skráið ykkur í viðfangsefni sem höfða til ykkar og verið virk í því starfi sem kann að verða í boði á hverjum stað.