Skemmtiferð í Guðmundarlund 12. júní

Eldri borgurum í Kópavogi er boðið í skemmtiferð miðvikudaginn 12. júní 2024. Hátíðin hefst kl. 14:00 og lýkur kl. 16:00.

Dagskrá: stuttar ræður, tónlist og léttar veitingar.

Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg fyrir 7. júní vegna útvegunar veitinga og takmarkaðs sætaframboðs í rútu. Þeir sem koma á einkabílum þurfa líka að skrá sig og þeir sem nota hjólastóla þurfa að panta hjá ferðaþjónustu.

  • Rúta frá Gjábakka kl. 13:15
  • Rúta frá Gullsmára kl. 13:30
  • Rúta frá Boðanum kl. 13:40

Kópavogsbær, Skógræktarfélag Kópavogs og FEBK

UPPSELT ER Í FERÐINA.