Kanasta í Gjábakka

Oft koma 25–30 manns í Gjábakkann á mánudögum og spila KANASTA kl. 13:15 og kaupa sér svo meðlæti með kaffinu á eftir. Sl. mánudag var metmæting þegar spilað var á tíu borðum.
Að vísu voru þrír spilarar við tvö borðanna en ekki fjórir eins og skemmtilegast er. Því voru 38 manns mættir í spilin.

Það er tekið vel á móti þeim sem vilja koma og prófa, bara að mæta á mánudegi í Gjábakkann um kl. eitt og byrja svo að spila KANASTA kl. 13:15.😁