Góð mæting á Haustkynningar

Í byrjun september voru haldnar haustkynningar í félagsmiðstöðvum eldri borgara í Kópavogi. Mætingin var mjög góð, sérstaklega í Gullsmára.

Frístundaráðgjafarnir Bryndís í Gullsmára, Sigurrós í Gjábakka og Bryndís í Boðanum kynntu tómstundir, hreyfingu, spil og annað félagsstarf á hverjum stað. Úrvalið er fjölbreytt og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Á vef félagsins, febk.is, má finna dagskrá félagsmiðstöðvanna með upplýsingum um hvað er í boði, hvar og hvenær.

Geir og Guðni frá FEBK sögðu einnig frá námskeiðum, ferðalögum og skemmtunum á vegum félagsins. Sérstök áhersla verður lögð á fjölbreytt námskeið á haustönninni.

Upplýsingar um námskeið og aðra viðburði má finna á febk.is undir Tómstundir og námskeið og upplýsingar um ferðir undir Ferðalög/Viðburðir.

Komið og verið með – það ættu allir að geta fundið eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi!