Góð heimsókn á laugardegi í Gullsmára

Önnur laugardagsopnun eftir sumarfrí var í Gullsmára í dag. Um 60 félagsmenn og gestir komu og flestir fengu sér góða súpu og brauð.

Eftir hádegið kom myndarlegur hópur ungra tónlistarnema úr Tónlistarskóla Kópavogs. Hópurinn nefnist Þjóðlagahópur og flytur gamla íslenska þjóðlagatónlist af mikilli snilld og gleði. Tónlistarfólkið kom fram í íslenskum þjóðbúningum frá Þjóðbúningafélagi Íslands, sem setti einstaklega skemmtilegan og hátíðlegan svip á tónleikana.

Óhætt er að segja að tónleikarnir hafi tekist mjög vel. Gestir tóku flytjendunum fagnandi og nutu þess að hlusta á þessa fallegu og líflegu tónlist. Þarna fór saman glæsilegur hópur, skemmtileg tónlist og einlæg ánægja þeirra sem á hlýddu.