Fimmta námskeiðið um gervigreindina ChatGPT vel sótt

Í dag var haldið fimmta námskeiðið á vegum Félags eldri borgara í Kópavogi um ChatGPT og gervigreind. Námskeiðið fór fram í Gullsmára og var þátttakan mjög góð, en rúmlega 50 manns mættu til að kynna sér þessa hröðu og spennandi tækni.

Leiðbeinandi var Stefán Atli Rúnarsson, viðskiptafræðingur, sem hefur haldið öll námskeiðin fyrir félagið. Hann útskýrði á skýran, fróðlegan og skemmtilegan hátt hvað ChatGPT er, hvernig gervigreindin virkar og með hvaða hætti hægt er að nýta hana í daglegu lífi.

Á námskeiðinu voru sýnd ýmis dæmi um hvernig ChatGPT getur aðstoðað við að semja og yfirfara texta, leita hugmynda, skipuleggja ferðalög, finna uppskriftir, þýða texta og svara margvíslegum spurningum. Einnig var rætt um hvað mikilvægt er að hafa í huga við notkun gervigreindar, meðal annars að yfirfara upplýsingar og gæta varúðar þegar persónuleg gögn eru annars vegar.

Það er óhætt að segja að námskeiðið hafi opnað augu margra fyrir þeim fjölbreyttu möguleikum sem gervigreindin býður upp á. Hún getur bæði auðveldað ýmis verkefni í daglegu lífi, hjálpað fólki að afla sér upplýsinga og verið uppspretta fróðleiks og skemmtunar.

Nú hafa um 320 félagsmenn FEBK sótt námskeið hjá Stefáni Atla um ChatGPT og gervigreind. Þessi mikla þátttaka sýnir vel þann áhuga sem er á meðal félagsmanna á að kynnast nýrri tækni og læra að nýta hana.

Nú verður gert hlé á námskeiðahaldinu um sinn, en ef áhuginn heldur áfram er stefnt að því að bjóða upp á fleiri námskeið síðar. Við þökkum Stefáni Atla kærlega fyrir fróðlega og skemmtilega leiðsögn og öllum þátttakendum fyrir góða mætingu og ánægjulega samveru.

Stefán Atli tók meðfylgjandi mynd og lét gervigreindina breyta þátttakendum í Lego-kubba.