Klúbbar fyrir áhugamálin og ýmis skemmtun

Í félagsmiðstöðvum eru starfræktir hinir ýmsu klúbbar og boðið upp á margvísilegar skemmtanir. Kynnið ykkur endilega starfsemina í félagsmiðstöðvunum.

Spil

Hannyrðir og handavinna
Söngur, ljóð og leshópar

Hreyfing

Námskeið og fræðslufundir

Félag eldri borgara í Kópavogi býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða og fræðsluerinda í haust og fram að áramótum. Markmiðið er að gefa félagsmönnum tækifæri til að læra eitthvað nýtt, fræðast um áhugaverð málefni og taka þátt í skemmtilegum og gefandi viðburðum.

Með þessu fjölbreytta fræðslu- og námskeiðsstarfi vill Félag eldri borgara í Kópavogi skapa félagsmönnum tækifæri til að halda áfram að læra, vera virkir og taka þátt í samfélaginu. Vonast er til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi og nýti sér þau tækifæri sem í boði verða.

Þær Jóna Hulda Pálsdóttir félagsráðgjafi eldra fólks og Halldóra María Hauksdóttir þjónustustjóri heimaþjónustu á velferðarsviði Kópavogs koma til okkar í Gullsmára, miðvikudaginn 28. október kl. 13 og kynna helstu þjónustuúrræði fyrir eldra fólk, veita upplýsingar um þjónustuna og fara yfir umsóknarferli.

Velferðarsvið Kópavogsbæjar veitir eldri borgurum fjölbreytta þjónustu sem stuðlar að sjálfstæði, öryggi og góðum lífsgæðum. Þar má meðal annars fá félagslega ráðgjöf, stuðning og upplýsingar um heimaþjónustu, dagdvöl og önnur úrræði. Einnig er lögð áhersla á félagsstarf og þátttöku sem vinna gegn einangrun og efla virkni. Þjónustan tekur mið af þörfum hvers og eins og miðar að því að fólk geti búið sem lengst heima.

Fyrirlesturinn er ókeypis en skráning nauðsynleg. 

Skráning neðst á síðunni.

Betra er heilt en vel gróið – Um byltur og byltuvarnir.

  • 3. nóvember kl. 13:10 í Gjábakka
  • 4. nóvember kl. 10:30 í Boðanum
  • 4. nóvember kl. 13:00 í Gullsmára

Berglind Indriðadóttir er iðjuþjálfi með umtalsverða reynslu innan öldrunarþjónustu. Hún hefur starfað við endurhæfingu á bráða- og öldrunardeildum Landspítala, hjá heimahjúkrun og hjúkrunarheimilum ásamt að fást við kennslu og fræðslu undir merkjum Farsællar öldrunar – Þekkingarmiðstöðvar. Í erindinu mun hún fjalla um byltur og byltuvarnir í víðu samhengi, en með áherslu á forvarnir samhliða sjálfstæði og virkni í daglegu lífi.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

 

Skráning á námskeið

ATH.

Félagsmenn í Félagi eldri borgara í Kópavogi hafa forgang að námskeiðum, ferðalögum og öðrum viðburðum félagsins.

Hægt er að gerast félagsmaður með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

GERAST FÉLAGSMAÐUR