Félagsmenn á Kanarí

Hópur félagsmanna lagði af stað til Kanarí 1. nóvember síðastliðinn og nýtur þar lífsins í sól og hita á meðan við, landar þeirra og félagar, hýrumst hér á Klakanum í kulda og trekki. Hópurinn dvelur á Eugenia Victoria-hótelinu.
Einn ferðafélaganna, Valgerður Pálsdóttir, varð 90 ára þann 2. nóvember. Við óskum henni innilega til hamingju með stórafmælið!
Fararstjóri í ferðinni er Margrét Halldórsdóttir og ferst henni það vel úr hendi að vanda. Hópurinn kemur heim 19. nóvember.🌞🏖🍻🍷