Vel sótt og áhugavert fræðsluerindi Heilahjálpar í Gullsmára

Um 50 félagsmenn FEBK mættu á fróðlegt og áhugavert fræðsluerindi Heilahjálpar – samtaka um heilabilun (áður Alzheimersamtakanna) í Gullsmára í dag, miðvikudaginn 14. október.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, fjallaði um heilabilun og þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.

Fundargestir voru ánægðir með erindið, sem minnti okkur á hversu mikilvægt það er að auka þekkingu og ræða opinskátt um heilabilun.

„Meiri þekking – minni fordómar“ eru einkunnarorð Heilahjálpar og lýsa vel mikilvægi slíkrar fræðslu.

FEBK þakkar Thelmu kærlega fyrir fróðlegt og gagnlegt erindi og félagsmönnum fyrir góða mætingu.