Föstudaginn 18. september lagði glaður hópur af stað í haustlitaferð FEBK í Borgarfjörð. Ekið var frá Gullsmára kl. 13:00 og Boðanum skömmu síðar. Veðrið lék við ferðalanga og haustlitirnir skörtuðu sínu fegursta.
Dvalið var í rúmar tuttugu mínútur í Borgarnesi áður en haldið var áfram að Hraunfossum og Barnafossi. Þar fékk hópurinn um klukkustund til að virða fyrir sér þetta glæsilega náttúruundur og njóta fallegs umhverfisins. Aðstaðan á staðnum er góð og margir nýttu tækifærið til að fá sér hressingu á kaffihúsinu. Þaðan lá leiðin aftur til Borgarness og í Landnámssetrið.
Klukkan sex var hópnum boðið upp á afbragðsgóða sjávarréttasúpu ásamt brauði, tei og kaffi. Á meðan á máltíðinni stóð fræddi Guðveig, forstöðukona Landnámssetursins, gesti um húsakynni setursins og þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram.
Um kvöldið sá hópurinn sýninguna *Mr. Skallagrímsson* með Benedikt Erlingssyni. Sýningin vakti mikla lukku og var skemmtilegur endapunktur á vel heppnuðum degi. Nokkur bið var frá kvöldverðinum þar til sýningin hófst, en hún kom ekki að mikilli sök þar sem hópurinn hafði það notalegt saman.
Hróðmar, hinn ágæti bílstjóri okkar og fyrrverandi bóndi á Erpsstöðum, skilaði ferðalöngum heilu og höldnu heim um tíu mínútum fyrir miðnætti. Ferðin heppnaðist prýðilega og allir sneru glaðir heim eftir skemmtilegan dag í góðum félagsskap.
Fararstjóri í ferðinni var Helgi Ágústsson.




