Félagsfundir í Gjábakka og Boðanum

Í vikunni voru haldnir tveir félagsfundir FEBK, í Gjábakka 19. maí og í Boðanum 21. maí. Þar fór Geir Þórðarson yfir helstu atriði úr skýrslu stjórnar síðasta árs. Ferðanefnd kynnti ferðaáætlun sumarsins sem er enn í vinnslu og skemmtinefnd sagði frá væntanlegum viðburðum.

Fundirnir voru því miður fámennir og því þarf að finna betri leiðir til að miðla upplýsingum til félagsmanna. Í lok mánaðar verður sendur fréttapóstur til þeirra sem hafa skráð netfang hjá félaginu með upplýsingum um helstu ferðir og viðburði næstu vikna.