Vorsýning í Gjábakka og Gullsmára

Vorsýningar voru í Gullsmára og Gjábakka í dag. Til sýnis var margvíslegt handverk og listmunir sem unnir hafa verið í vetur.
 
Í Gjábakka voru viðfangsefnin tréskurður, postulínsmálun, handavinna og myndlist. Myndlistasýningin var sérstaklega glæsileg.  Boðið var upp á kaffi og vöflur og Tómas Helgi trúbador spilaði og söng fyrir gesti.
 
Í Gullsmára voru viðfangsefnin ljósmyndir, handavinna, tréskurður, myndlist, bútasaumur, postulínsmálun, fluguhnýtingar og málm- og silfursmíði. Í anddyrinu var skemmtileg sýning á myndum frá börnum á leikskólanum Arnarsmára. Sönghópurinn 12 í takt skemmti gestum með söng sem var vel tekið. Áætlað er að 160 gestir hafi komið í Gullsmára.
 
Er óhætt að segja að allt á sýningunum var vel unnið og falllegt.
 
Smellið á mynd til að skoða stærri útgáfu.