Í dag var haldið fjórða námskeiðið um ChatGPT og gervigreind. Námskeiðið fór fram í Gullsmára og mættu rúmlega 50 manns.
Stefán Atli Rúnarsson, leiðbeinandi, fræddi okkur um ChatGPT og önnur gervigreindarforrit á bæði fróðlegan og skemmtilegan hátt. Það er óhætt að segja að námskeiðið hafi opnað augu margra fyrir þeim fjölmörgu möguleikum sem gervigreindin býður upp á – bæði til að auðvelda daglegt líf og jafnvel til skemmtunar.
Nú hafa um 270 félagsmenn FEBK sótt námskeið um gervigreind. Við gerum nú hlé á námskeiðahaldi fram á haust en stefnum á að taka upp þráðinn aftur þá – ef áhuginn heldur áfram að vera til staðar.

