Breiðfirðingakórinn kom í heimsókn í Gullsmára.

Í dag var opið í Gullsmára milli kl. 12 og 14. Súpa og brauð í boði. Breiðfirðingakórinn var með opna æfingu og söng fyrir okkur 7 lög. Skemmtileg lög og góður söngur og strákabandið var flott. Þið eruð ávallt velkomin, kæru Breiðfirðingar.