AÐALFUNDUR FEBK 24. MARS 2026

Geir formaður setti fundinn og stakk upp á Ragnari Jónassyni sem fundarstjóra
og Stefaníu Björnsdóttur sem ritara. Ragnar þakkaði traustið, lýsti fundinn
lögmætan þar sem hann hefði verið boðaður með tilskildum fyrirvara og kynnti
fyrsta lið sem var skýrsla formanns.

1. Skýrsla formanns
Geir flutti greinargóða skýrslu formanns og nefndi að auk stjórnarmanna
væri Baldur á flestum stjórnarfundum enda væri hann „allt í öllu“ eins og
flestum er kunnugt. Geir fór síðan yfir starf sl. árs. Mikið starf var á
vegum félagsins og margs konar afþreying í boði til fróðleiks,
skemmtunar og heilsubótar. FEBK hefur líka m.a að markmiði að koma í
veg fyrir einsemd og einveru með margvíslegum tilboðum um dægradvöl
af ýmsu tagi og má þar t.d. nefna laugardagsopnunina í Gullsmára sem
hefur verið vel tekið. Yfir 400 manns hafa gengið í félagið síðan á síðasta
aðalfundi og félagar því orðnir yfir 3.000.
Ragnar þakkaði Geir fyrir skýrsluna og nefndi að hann ynni mikið því að
auk hefðbundins opnunartíma skrifstofunnar væri Geir þar eiginlega alltaf
til staðar ef hann (Ragnar) liti inn.

2. Reikningar
Í fjarveru Sigrúnar gjaldkera fór Steini varaformaður yfir reikninga og í
ljós kom að félagið stendur fjárhagslega afar vel. Nokkrar spurningar
bárust varðandi reikningana og svaraði Steini þeim eftir bestu getu og
voru reikningarnir síðan samþykktir.

3. Kosningar
Farið var yfir hverjir sitja áfram í stjórn.
Ekki kom til kosninga þar sem hæfilega margir voru í framboði.
Ný stjórn er þannig skipuð:
Stjórn FEBK 2026 – 2027

Formaður: Geir Þórðarson
Aðrir í aðalstjórn
Steini Þorvaldsson, varaformaður
Sigrún Þorláksdóttir, gjaldkeri
Stefanía Björnsdóttir, ritari
Auður Gísladóttir
Guðni Ásgrímsson
Jóhanna G. Hafliðadóttir

Varastjórn
Kolbrún Óskarsdóttir
Margrét Halldórsdóttir
Sigríður S. Helgadóttir

Skoðunarmenn reikninga
Ragnar Jónasson
Árni Ingimundarson
Til vara
Nanna Baldursdóttir

Stjórn FEBK tilnefnir fulltrúa í Öldungaráð, á landsfund LEB,
uppstillingarnefnd og aðrar nefndir.

4. Önnur mál

  • Árgjaldið verður óbreytt fyrir árið 2027, kr. 4.000.
  • Steini sagði í stuttu máli frá starfi ferðanefndar. Baldur er formaður
    hennar og stór hluti starfs hennar hvílir á honum. Búið er að
    skipuleggja nokkrar ferðir og verða þær kynntar eins fljótt og
    mögulegt er.
  • Margrét Halldórdóttir kom næst, þakkaði traustið og sagði síðan
    stuttlega frá Kanaríeyjaferð sem hún er nýkomin úr. Einnig
    auglýsti hún ferð til Prag sem er á döfinni og sagði frá fyrirhugaðri
    Kanaríeyjaferð í haust.
  • Geir afhenti fráfarandi stjórnarmönnum, Guðrúnu og Katrínu,
    veglega blómvendi og færði þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.
  • Geir þakkaði fundarmönnum fyrir komuna og síðan bauð Ragnar í
    kaffi og sleit fundi kl. 16:40.

Fundargestir á að giska 70 – 80

Fundarritari: Stefanía