Í dag komu Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara (LEB), og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri, í heimsókn til okkar og sögðu frá helstu baráttumálum LEB og verkefnum sambandsins. Erindi þeirra Björns og Oddnýjar voru mjög fróðleg og á eftir fóru fram líflegar umræður. Rúmlega 50 félagsmenn sátu fundinn.

