Farið verður í heimsókn á Esso-safnið þriðjudaginn 9. júní. Rútan fer frá Gullsmára kl. 15:30 og frá Boðaþingi 15:45. Áætlað er að stoppa á safninu í u.þ.b. tvo tíma. Aðgangur og rútuferð er í boði FEBK en skrá sig þarf í ferðina á febk.is.

Esso-safnið í Reykjavík er áhugavert safn sem vekur upp nostalgíu hjá mörgum. Þar má sjá fjölbreytta muni sem tengjast sögu Esso á Íslandi, meðal annars gamlar bensíndælur, skilti, auglýsingar og ýmsa muni frá þjónustustöðvum fyrri tíma. Safnið gefur skemmtilega innsýn í þróun bílamenningar og þjónustustöðva á Íslandi á 20. öld.

Skráning í ferðina hér

Fimmtudaginn 18. júní ætlum við að heimsækja Gljúfrastein í Mosfellsdal. Leggjum af stað með rútu frá Gullsmára kl.12:30. Við fáum leiðsögn um safnið. 

  • Verð kr. 3.900
  • Verð kr. 4.200 fyrir utanfélagsmenn
  • Innheimt í heimabanka.

🔹🔹🔷🔹🔹

Um safnið

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið og listaverkin árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Fjölskylda skáldsins gaf safninu allt innbú á Gljúfrasteini sem tilheyrði fjölskyldunni með sérstöku gjafabréfi. 

Skráning í ferðina hér

Eldri borgurum í Kópavogi er boðið í skemmtiferð í Guðmundarlund 23. júní 2026 í boði Félags eldri borgara í Kópavogi, Skógræktarfélags Kópavogs og bæjarstjórnar Kópavogs.

Hátíðin hefst kl. 14:00 og lýkur kl. 16:00.

Dagskrá: stuttar ræður, tónlist og léttar veitingar.

Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg fyrir 18. júní. Rútuferðir frá Gjábakka, Gullsmára og Boðanum kl. 13:30 fyrir þá sem koma ekki á einkabílum.

Síðasti skráningardagur er 18. júní.

Skráning í skemmtiferð í Guðmundarlund

Félag eldri borgara í Kópavogi efnir til ferðar til Vestmannaeyja miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Lagt verður af stað frá skrifstofu félagsins kl. 08.00.

Ekið til Landeyjahafnar og ferjan Herjólfur tekin til Vestmannaeyja. Eftir stutta skoðunarferð verður snæddur hádegisverður hjá Einsa Kalda og að því búnu skoðum við Eldheima. Safnið Eldheimar rifjar upp á myndrænan og áhugaverðan hátt þegar 5000 íbúar Vestmannaeyja flúðu heimili sín örlaganóttina 23. janúar 1973. Leiðsögumaður úr Eyjum verður með okkur og stýrir ferð um eyjuna, og áður en við tökum ferjuna til lands, kl. 19:30, snæðum við kvöldverð hjá Einsa Kalda. Aðalréttur lambafille og lambaprime, eftirréttur súkkulaði browie.

Heimkoma í Kópavoginn um kl. 22:00.

Verð kr. 25.500 fyrir félagsmenn, kr. 28.000 fyrir utanfélagsmenn. 

Skráning í ferðina hér

Hér eru þær ferðir sem búið er að ákveða eða eru í vinnslu. Allar ferðir verða auglýstar hér og á Facebook-síðu félagsins. Ferðaáætlun getur breyst.

  • Jeppaferð á Langjökul með viðkomu við Hraunfossa og í Húsafelli. Ferðinni lokið.
  • Tveggja nátta ferð á Suðausturland 1. – 3. júní, gisting á Hótel Vatnajökli. Uppselt er í ferðina.
  • Safnaferð á Esso-safnið 9. júní. Skráning hér.
  • Safnaferð að Gljúfrasteini 18. júní. Skráning hér.
  • Skemmtiferð í Guðmundarlund 23. júní. Upplýsingar og skráning hér.
  • Dagsferð til Vestmannaeyja 12. ágúst. Skráning hér.
  • Dagsferð í Hvalfjörð, Hvalveiðisafnið, Hernámsárasafnið og Akranesvita 3. september. Skráning er ekki hafin.
  • Dagsferð um Suðurland í vinnslu. Fyrirhugað að skoða kirkjur. Dagsetning ekki ákveðin. Skráning ekki hafin.

 

Athugið – Í ferðum á vegum FEBK þurfa farþegar að vera færir um að geta komist leiða sinna óstuddir því alltaf er um einhverjar göngur að ræða sem tengjast skoðunarferðum þó svo þær séu ekki mikið á fótinn né mjög langar.

Félagsmenn Félags eldri borgara í Kópavogi, sem greitt hafa árgjaldið, hafa forgang í ferðir, viðburði og námskeið á vegum félagsins.