Ljóðahópur gjábakka
.
.
.
.
Undir trénu
Lúxussalur
slökunarsæti
mjaka mér aftar
í leit að bakstuðningi
styð á takka
úps
ligg þá kylliflöt
brölti um
og stilli stól
sit þá prúð
með fætur í lausu lofti
of lítil fyrir lúxussal
Ps. Myndin var samt góð.
Inga Guðmundsdóttir
Óður til lífsins
(Ort til eiginmannsins, Hauks Hannibalssonar, á 30 ára brúðkaupsafmæli þeirra.)
Sigurbjörg Björgvinsdóttir
Heimaslóðir
Öll þessi blátóna fegurð
sem umvefur heimabyggðina.
Blátt haf blár himinn
blár fjallahringur.
Þú lokar augunum
til að varna tárunum
að brjótast fram
sjötíu ár en sársaukinn í brjóstinu hinn sami.
Þú stendur á bryggjunni og starir
á bláköflótta vestið
hans bróður þíns litla
sem liggur á botninum
við bryggjusporðinn.
Blátt haf blár himinn
blár fjallahringur
og hyldjúpur sársauki.
Heiður Gestsdóttir (1930–2024)
Ljóðahópur Gjábakka er sjálfsprottin starfsemi eldri borgara í Kópavogi og hefur starfað í frá síðustu aldamótum. Hópurinn hefur alla tíð haft aðstöðu í Gjábakka og hittist yfir vetrartímann. Skoðaðar er nýútkomnar eða eldri ljóðabækur, aðallega íslenskra skálda en einnig þýdd ljóð. Þá lesa félagar upp eigin ritsmíðar og ræða ljóðin. Mikil breidd er í tjáningarformi, sumir yrkja í frjálsu formi, aðrir reyna sig við hina margvíslegustu bragarhætti eða skrifa prósaljóð, örsögur og jafnvel smásögur. Fyrir Covid lauk vetrarstarfinu með því að gefin var út bók með afrakstri vetrarins. Eins og svo margt annað breyttist það eftir faraldurinn og kom síðasta bókin út 2020.
Skáldin hafa lesið ljóð sín víða, aðallega í félagsmiðstöðvum eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land. Þeir hafa jafnvel farið með ljóð sín til útlanda. Einnig hafa þeir lesið upp við ýmiss konar menningarviðburði, svo sem Menningarnótt og Vetrarhátíð Reykjavíkur, Hamraborgarhátíð og Dögum ljóðsins í Kópavogi og Ljósanótt á Suðurnesjum. Ungir leikarar lásu eitt sinn ljóð skáldanna á sérstakri dagskrá í Bókasafninu í Grófinni.