Stöðvakennsla
Námskeiðið er sett upp sem stöðvakennsla í TrackMan og á pútt og vippsvæði. Settar eru upp 12 stöðvar sem mæla getu kylfings allt frá púttum og til teighögga. Allar æfingar og skor á hverri stöð er hægt að skrá, þannig að hver og einn sér fljótlega hvar styrkleikar og veikleikar eru á hverju sviði. Einnig er möguleiki á að vera með nokkrar styrktaræfingar sem tengjast golfasveiflunni.
Farið verður yfir öll helstu atriði golfsins, pútt, vipp, járn, brautarhögg, teighögg og driver, skoðum kylfuhraða og önnur tækniatriði og próf sem TrackMan býður upp á.
Einnig mun golfkennarinn sinna hverjum og einum þegar við á. Athugið að námskeiðið er hugsað sem stöðvarkennsla og hópkennsla frekar en einkakennsla og passað er upp á að það sé hreyfing á kylfingum þannig að hver og einn er ekki fastur á einni stöð.
Með tímanum sést hvað þarf sérstaklega að bæta og Hlöðver kemur með leiðréttingu og hvað þarf að bæta. TrackMan geymir allar æfingar og spil og gott að skoða það og hvað þarf að laga.
Vinsamlegast athugið að aðeins eru 12-14 pláss á þetta námskeið. Hver tími er 60 mín.
