Skráning í ferð
Félagsmenn FEBK hafa forgang í ferðir félagsins. Umsóknir verða afgreiddar í tímaröð þ.e. fólk raðast inn í umbeðna ferð í samræmi við dagsetningu og tíma hverrar umsóknar. Sama á við um biðlista ef um umframeftirspurn er að ræða.
Fyrirvari:
Félagið áskilur sér rétt til að fella niður einstakar ferðir vegna veðurs, ónógrar þátttöku eða af öðrum ástæðum. Verð geta breyst m.v. breyttar forsendur.
Í ferðum á vegum FEBK þurfa farþegar að vera færir um að geta komist leiðar sinnar óstuddir því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru hvorki mikið á fótinn né mjög langar.
