Ljósboðinn – Ljósmyndaklúbbur í Boðanum
Ljósmyndaklúbburinn Ljósboðinn var stofnaður í Boðanum 5. nóvember 2025. Klúbbfélagar eru 14 og hægt að taka við fleiri áhugasömum ljósmyndurum. Félagarnir hittast á tveggja vikna fresti, skoða og bera saman myndir og ræða um myndbyggingu, liti og birtu, sjónarhorn, klippingu eða stærð og ýmislegt fleira. Klúbburinn hefur sett upp innrammaðar myndir á vegg í Boðanum sem verða endurnýjaðar eftir því sem klúbbnum vex fiskur um hrygg. Mánaðarlega er birt „Mynd mánaðarins“ hér á vef félagsins.
Áhugasamir geta haft samband við formann klúbbsins, Eirík Þ. Einarsson, með tölvupósti á netfangið eirikur@eirikur.is.
Ljósmynd mánaðarins hjá Ljósboðanum.
Smelltu á mynd hér fyrir neðan til að sjá hana stærri.
