FEBK hefur gert samning við rekstraraðila SPARA-appsins um að bjóða félagsmönnum upp á rafrænt félagsskírteini í appinu.

Með þessari lausn geta félagsmenn ekki aðeins sýnt félagsskírteini sitt í símanum heldur einnig séð öll þau tilboð og afslætti sem Landssamband eldri borgara hefur samið um við fjölmörg fyrirtæki. Jafnframt er þessi leið hagkvæm fyrir félagið.

Rafræna félagsskírteinið hefur þegar verið sett inn í SPARA-appið hjá öllum félagsmönnum sem hafa greitt árgjald þessa árs. Félagsmenn geta því valið hvort þeir noti plastskírteinið eða rafræna skírteinið í appinu þegar framvísa þarf félagsskírteini til að fá afslátt.

Bæði plastskírteinið og rafræna skírteinið gilda til 31. mars 2027.

Áður en ný félagsskírteini verða gefin út á næsta ári verður félagsmönnum boðið að afþakka plastskírteini ef þeir kjósa að nota eingöngu rafræna skírteinið í SPARA-appinu. Þeir sem vilja áfram fá plastskírteini þurfa ekki að gera neitt – þau verða áfram gefin út eins og áður.

Það er einfalt að sækja og nota SPARA-appið. iPhone- og iPad-notendur geta sótt það í App Store, en notendur Android-síma og Android-spjaldtölva finna það í Google Play Store.

Svona finnur þú rafræna félagsskírteinið í SPARA.

Á spara.is finnur þú leiðbeiningar um hvernig á að sækja appið í símann. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að skoða þær.

Leiðbeiningar

.

Ef þú ætlar eingöngu að nota rafrænt félagsskírteini þá getur þú afþakkað plastskírteinið hér. 

Afþakka plastskírteini

Ég ætla eingöngu að nota rafrænt félagsskírteini og afþakka því plastskírteini.