Contact event manager
Book your tickets
Fyrirlestur um næringu
12:30 - 13:30
10/09/2024
000000
Nú er komið að næsta fræðslufyrirlestri hjá okkur í Virkni og Vellíðan en eitt af okkar helstu markmiðum er að stuðla að auknu heilsulæsi þátttakenda okkar.
Á þessari önn ætlar hún Agnes Þóra næringarfræðingur að koma til okkar og halda erindi um næringu og vellíðan. Agnes hefur komið til okkar áður og var þá mikil ánægja með fræðsluna.
Í þetta skiptið ætlum við að bjóða upp á þrjár tímasetningar á fræðslufyrirlesturinum. Þá geta þátttakendur og aðrir íbúar Kópavogs valið á hvaða tíma þeir vilja mæta á fyrirlesturinn. Fyrirlestrarnir munu fara fram í félagsmiðstöðvum eldri borgara, Gullsmára, Gjábakka og Boðaþingi.
– Gullsmári – Þriðjudaginn 10.september klukkan 12:30
– Boðaþing – Föstudaginn 13.september klukkan 12:30
– Gjábakki – Þriðjudaginn 17.september klukkan 12:30
Við vonumst til þess að sjá sem flesta og eins og áður þá eru þessir fyrirlestrar opnir öllum Kópabogsbúum 60 ára og eldri