Contact event manager
Book your tickets
Safnaheimsókn um Suðurland
13:00 - 18:30
16/05/2024
000000
Hálfs dags ferð fimmtudaginn 16. maí 2024
Farið frá skrifstofu félagsins að Gullsmára 9 kl. 13:00 og ekið á Selfoss. Þegar þangað er komið verður byrjað á því að heimsækja Flug-, bíla- og stríðsminjasafnið sem Eyjamaðurinn Einar Pálmi Elíasson, húsasmíðameistari og iðnrekandi stofnaði. Þetta safn varðveitir sögu Kaldaðarness- og Selfossflugvallar á ólíkum tímum, ekki síst sögu ungu drengjanna í RAF flugsveit Breta á Ölfursárbökkum á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Við heimsækjum Þingborg. Ullarverslun í sérflokki og þar er einnig Gallerí Flói, listamannsrekin vinnustofa.
Við heimsækjum Tré og List í Forsæti og skoðum afar áhugavert gallerí þeirra hjóna Ólafs Sigurjónssonar og Bergþóru Guðbergsdóttur. Á safninu er meðal annara fágætra muna gamla orgel Landakirkju í Vestmannaeyjum og eftirmynd af auga Lindu Pé, alheimsfegurðardrottningu, rennt og skorið út í tré.
Kaffi og meðlæti bíða okkar svo á leiðinni í Kópavoginn aftur. Fararstjóri verður Helgi Ágústsson og áætluð heimkoma kl. 18:30.