Skráning á viðburð

Vínartónleikar í Hörpu laugardaginn 9. janúar 2027

Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar. Þeir eru sannkölluð nýársveisla og sú létta og skemmtilega tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt ár. Á efnisskránni er að vanda sígild Vínartónlist sem kemur öllum í gott skap; valsar, polkar, og fjörug galopp. Þá hljóma aríur og dúettar úr vinsælum óperettum í flutningi tveggja framúrskarandi einsöngvara.

  • Miðaverð á tónleikana kr. 9.100.
  • Fargjald með rútu kr. 3.000.
  • Samtals kr. 12.100.

Rútur frá félagsmiðstöðvunum:

  • Frá Boðanum kl. 14:30
  • Frá Gullsmára kl. 14:45
  • Frá Gjábakka kl. 15:00

Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

 

Miðaverð og fargjald með rútu (ef það á við) er innheimt með kröfu í heimabanka. Gjalddagi 10. nóvember og eindagi 20. nóvember.

🔸Félagsmenn FEBK hafa forgang við miðakaup.